Enski boltinn

Moyes styður við bakið á Januzaj

Kristinn Páll Teitsson skrifar
David Moyes og Adnan Januzaj
David Moyes og Adnan Januzaj Mynd/Gettyimages
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United telur að of mikið sé gert úr meintum leikaraskap Adnan Januzaj, leikmanni Manchester United. Januzaj sem skaust fram á sviðsljósið á þessu tímabili fékk sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap um helgina.

Þrátt fyrir að vera aðeins átján ára og hafa aðeins spilað ellefu leiki í ensku úrvalsdeildinni hefur Januzaj nú þegar verið tvisvar spjaldaður vegna leikaraskaps. Moyes kom Januzaj til varnar í dag en tölfræðilega er oftast brotið á Januzaj miðað við spilaðar mínútur í deildinni.

„Ég get bara talað frá mínu sjónarhorni, ég hef horft upp á andstæðingana sparka í hann út um allan völl án þess að dómararnir skipti sér af. Hann átti ekki að láta sig falla og við höfum minnt hann á þetta, við gerum allir mistök og hann mun læra af þessu,"

Moyes er óánægður með meðferðina sem Januzaj fær á Englandi af hálfu andstæðinga.

„Ef að það er alltaf verið að reyna að sparka þig niður þá verðuru stundum að hoppa frá til að forðast meiðsli. Ég vonast bara til þess að það þurfi ekki alvarleg meiðsli til að vekja athygli á meðferðinni sem Adnan er að fá,"

Á sínum tíma varði Sir Alex Ferguson Cristiano Ronaldo fyrir sömu spurningum, hann þótti sýna full mikinn leikaraskap á sínum tíma.

„Við erum að tala um virkilega efnilegan leikmann sem verið er að reyna að sparka niður. Á sínum tíma var Cristiano Ronaldo í sömu stöðu og það rættist ágætlega úr honum. Adnan mun verða frábær leikmaður einn daginn," sagði Moyes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×