Joe Allen telur að Liverpool geti barist um titilinn Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. desember 2013 12:30 Joe Allen og Jordan Henderson fagna marki með Luis Suarez Mynd/Gettyimages
Joe Allen telur að Liverpool geti barist um titilinn á þessu tímabili. Liverpool situr í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sautján leiki fyrir leiki morgundagsins. Dagskráin er ekki auðveld fyrir Liverpool í þessari viku, aðeins þremur dögum eftir leik gegn Manchester City á Etihad er leikur gegn Chelsea á Stamford Bridge. Allen telur að leikirnir sem eru framundan séu gott próf hvort liðið sé tilbúið að berjast um titilinn. „Að vera efstir á jólunum er frábær árangur en við reynum að gera ekki of mikið úr því. Næstu tveir leikir eru stórleikir, við sjáum til hver staðan verður eftir þá," „Þetta verður erfitt verkefni en við erum á góðu skriði, miðað við hvernig við höfum verið að spila eigum við möguleika að ná stigum hvar sem er. Bæði liðin eru gríðarlega sterk á heimavelli en það verður alltaf einhver að stöðva það. Við verðum að vera metnaðarfullir og reyna vera liðið til þess að gera það," Allen gat nú varla talað við fjölmiðla án þess að hrósa Luis Suarez, sóknarmanni Liverpool. Suarez er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa misst af fimm leikjum í upphafi tímabils. „Hann er að spila í hæsta gæðaflokki í hverri viku, skorandi mörk og skapandi fyrir okkur hina. Þetta er til marks um heimsklassaleikmann sem hann er svo sannarlega," Suarez skrifaði undir nýjan samning við Liverpool í síðustu viku og fylgdi því með tveimur mörkum og stoðsendingu í öruggum sigri á Cardiff. „Að hann hafi skrifað undir nýjan samning gefur okkur öllum aukið sjálfstraust, þetta dregur vonandi að klúbbnum fleiri heimsklassaleikmenn. Að Suarez hafi skrifað svona fljótlega undir sýnir að hann hefur trú á verkefninu hérna, allir leikmennirnir eru metnaðarfullir í að ná árangri. Það er engin ástæða afhverju við ættum ekki að geta barist á toppi deildarinnar," sagði Allen.
Enski boltinn Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Fleiri fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Sjá meira