Enski boltinn

Verðum að hafa einbeitinguna í lagi

Mathieu Flamini, miðjumaður Arsenal, brýnir fyrir félögum sínum að halda einbeitingu þó svo vel gangi hjá liðinu um þessar mundir.

Arsenal á leik gegn Napoli í Meistaradeildinni á morgun og svo er stórleikur um næstu helgi er Arsenal sækir Man. City heim á Etihad-völlinn.

"Það er frábært að vera með fimm stiga forskot í deildinni en það er langt í að tímabilið klárist. Við verðum að halda einbeitingu. Það eru tveir risaleikir fram undan núna. Jólin verða erfið og algjörlega lífsnauðsynlegt fyrir okkur að halda fókus," sagði Flamini.

"Þetta eru allt stórir leikir og allir vilja spila."

Arsenal ætti að duga jafntefli gegn Napoli til að tryggja sér efsta sæti riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×