Enski boltinn

Collymore verður aftur fyrir kynþáttaníði á Twitter

Collymore vinnur fyrir sér sem útvarpsmaður í dag.
Collymore vinnur fyrir sér sem útvarpsmaður í dag.
Stan Collymore stendur nú öðru sinni í ströngu á samskiptasíðunni Twitter. Í annað sinn hefur hann neyðst til þess að fara til lögreglunnar eftir að hafa orðið fyrir kynþáttaníði á Twitter.

Fyrr á árinu kærði Collymore hinn 21 árs gamla Joshua Cryer fyrir kynþáttaníð á Twitter. Cryer slapp við fangelsisdóm en þarf að sinna samfélagsþjónustu í tvö ár.

Sá er lét Collymore heyra það núna hefur þegar beðist afsökunar og vægðar. Í kjölfarið eyddi hann aðgangi sínum að Twitter.

Það stöðvaði þó ekki Collymore sem fór beint til lögreglunnar og kærði.

"Er ég að gráta? Er ég þunglyndur eða í sjálfsmorðshug? Alls ekki. Er bara að loka dyrunum á hálfvitana hérna," skrifaði Collymore á Twitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×