Enski boltinn

Silva: Leikmenn eru í sárum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rafael með David Moyes knattspyrnustjóra á blaðamannafundi í gær.
Rafael með David Moyes knattspyrnustjóra á blaðamannafundi í gær. Nordic Photos / Getty Images
Varnarmaðurinn Rafael da Silva viðurkennir að leikmenn Manchester United séu í sárum eftir slakt gengi liðsins í upphafi tímabilsins.

United hefur tapað síðustu tveimur heimaleikjum sínum, gegn Everton og Newcastle, en slíkt hefur ekki gerst undanfarin ellefu ár. Liðið er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þrettán stigum á eftir toppliði Arsenal.

„Auðvitað er þetta sárt. Maður vill vinna hvern einasta leik, sérstaklega hjá Manchester United. Við þurfum bara að leggja enn meira á okkur og bæta okkar leik,“ sagði Rafael í samtali við enska fjölmiðla.

„Ef til vill má skrifa eitthvað á óheppni en þetta hefur líka haft áhrif á sjálfstraustið. Vonandi fer þetta að snúast við í næstu leikjum.“

United mætir úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk á heimavelli í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld og dugir jafntefli til að tryggja sér sigur í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×