Enski boltinn

Suarez jók forskotið án þess að spila

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nefnd á vegum ensku úrvalsdeildarinnar hefur úrskurðað að Luis Suarez skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Liverpool á West Ham en ekki eitt. Liverpool Echo greinir frá þessu.

Suarez skaut utan teigs að marki West Ham í síðari hálfleiknum. Skotið breytti um stefnu af Joey O'Brien, varnarmanni West Ham, og fór þaðan í netið. Markið var skráð á O'Brien þar til í dag að þeim úrskurði var breytt. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum að ofan.

Markið var það síðara hjá Úrúgvæjanum í leiknum og er hann nú kominn með 15 mörk í deildinni. Athygli vekur að Suarez hefur aðeins spilað 10 leiki og hefur hann því skorað eitt og hálft mark að meðaltali í leik. Hann hefur þriggja marka forskot á Sergio Agüero, framherja Manchester City.

Markahæstir í ensku deildinni

Luis Suarez 15

Sergio Agüero 12

Daniel Sturridge 9

Romelu Lukaku 8

Aaron Ramsey 8

Loic Remy 8

Wayne Rooney 8




Fleiri fréttir

Sjá meira


×