Enski boltinn

Koscielny fékk djúpan skurð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Lauren Koscielny, varnarmaður Arsenal, var borinn af velli í leik liðsins gegn Manchester City í dag.

Koscielny fékk djúpan skurð í hnéð þegar að Alvaro Negredo skoraði annað mark City í 6-3 sigri liðsins á Arsenal í dag.

„Hann fékk skurð og verður frá í einhvern tíma. Það er óljóst hversu lengi,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eftir leikinn i dag.

Liðið mætir Chelsea á útivelli á Þorláksmessu en að venju er spilað þétt um hátíðarnar og ljóst að missir Arsenal er mikill ef Koscielny verður lengi frá.

Koscielny og Per Mertesacker hafa staðið sig vel í vörn Arsenal í haust. Thomas Vermaelen leysti Koscielny af hólmi í dag en Arsenal á ekki fleiri miðverði í leikmannahópi sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×