Endurkoman á Anfield var hápunktur ársins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. desember 2013 13:00
Luis Suarez, sóknarmaður Liverpool, á skrautlegt ár að baki en úrúgvæska stjarnan gerir upp árið í viðtali á heimasíðu félagsins. Suarez hefur skorað sautján mörk á tímabilinu til þessa í Englandi þrátt fyrir að hafa misst af fimm leikjunum í haust þar sem hann var í banni. Hann fékk tíu leikja bann í vor fyrir að bíta Branislav Ivanovic, leikmann Chelsea. Suarez spilaði með Liverpool í góðgerðarleik Steven Gerrard í sumar og sneri svo aftur á Anfield í deildarleik þegar að liðið mætti Crystal Palace í október. Suarez skoraði í leiknum. „Hápunktur ársins var þegar ég kom aftur á Anfield. Það vita allir að sumarið var erfitt fyrir mig. En stuðningsmennirnir hjálpuðu mér þegar ég kom aftur og það var ótrúlegt að finna fyrir því. Það var mikilvægt fyrir sjálfstraustið, hjartað og fjölskylduna mína. Stuðningsmennirnir eru með mér í þessu og það var góð stund fyrir mig,“ sagði Suarez. Suarez kemur víða við í viðtalinu og er til dæmis spurður um HM í Brasilíu næsta sumar. Úrúgvæ og England verða þar saman í riðli. „Ég vonaði fyrirfram að við myndum ekki lenda saman í riðli. Það var svo ótrúlegt að sjá að England var dregið úr skálinni. Við Stevie [Gerrrard] skiptumst á skilaboðum og gátum hlegið að þessu.“ „En nú ætla ég að einbeita mér að Liverpool en við munum kannski ræða þetta frekar þegar tímabilinu lýkur.“
Enski boltinn Mest lesið Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Fótbolti Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn Fótbolti Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Fótbolti Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Fótbolti „Hörku barátta tveggja góðra liða“ Fótbolti Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Sjá meira