Gylfi: Óska þess aldrei að menn missi vinnuna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. desember 2013 10:45 Gylfi ræðir við Andre-Villas Boas. Nordic Photos / Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson segir að brottrekstur Andre Villas-Boas hafi komið sér á óvart. Hann vonast til að fá að spila meira undir stjórn nýs þjálfara. Þetta segir hann í samtali við Morgunblaðið í dag. „Ég bjóst ekki við því að hann yrði rekinn en þessir tveir stóru skellir á móti Manchester City og gegn Liverpool um helgina hafa líklega ráðið mestu um að hann var látinn fara,“ sagði Gylfi. Tottenham tapaði um helgina fyrir Liverpool á heimavelli, 5-0, og Villas-Boas var látinn taka poka sinn á mánudaginn. Hann er ekki sá fyrsti en Tottenham hefur verið duglegt við að skipta um stjóra síðustu árin. „Nú vonar maður að það komi einhver góður í staðinn,“ bætir hann við. „Það er kannski svolítið neikvætt að það hafi verið svona margir stjórar á undanförnum árum en það er líka jákvætt að félagið vill mikinn árangur. Það er mikill metnaður til staðar og félagið vill bæta sig.“ Gylfi hefur lítið fengið að spila í deildinni að undanförnu og vonast vitanlega að hann fái fleiri tækifæri undir stjórn nýs stjóra. „Maður getur aldrei verið ánægður þegar einhver missir starfið sitt en það er nú þannig í þessu að maður vill alltaf fá að spila sem mest,“ segir Gylfi sem er áhugasamur um að fá að spila meira á miðjunni. „Ég hef spilað svolítið lengi úti á vinstri kantinum sem er ekki alveg mín staða. Það er allt í lagi að gera það í einhvern tíma en ég vona að með nýjum manni þá fái ég að spila meira inn á miðjunni. Ég fékk einn og einn leik í minni stöðu þegar Villas-Boas var við stjórnvölinn, ég hefði viljað fá fleiri í röð.“
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Fleiri fréttir Crystal Palace - Tottenham | Margir í banni hjá gestunum Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Sjá meira