Enski boltinn

Hermann og David James sagðir vilja starf hjá Portsmouth

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
David James og Hermann Hreiðarsson eru sagðir á meðal umsækjanda um laust starf knattspyrnustjóra Portsmouth.

Enska félagið er í stjóraleit eftir að Guy Wittingham var látinn var. Sunday Mirror Sport greinir frá því að Hermann og James hafi lagt inn sameiginlega umsókn um starfið.

James spilaði undir stjórn Hermanns með ÍBV síðastliðið sumar. Félagarnir urðu bikarmeistarar með Portsmouth árið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×