Enski boltinn

Fimmtán marka maður í sigtinu hjá Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Enska blaðið Mirror heldur því fram í dag að Liverpool hafi áhuga á að festa kaup á sóknarmanninum Danny Ings hjá Burnley.

Ings hefur farið mikinn í ensku B-deildinni og er þegar búinn að skora fimmtán mörk á þessu tímabili.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er sagður vilja fá Ings til að styðja við þá Luis Suarez og Daniel Sturridge en sá síðarnefndi er nú frá vegna ökklameiðsla.

Ings er 21 árs gamall og kom árið 2011 frá Bournemouth. Hann á tvo leiki að baki með U-21 landsliði Englands og hefur skorað í þeim tvö mörk.

Óvíst er hvort að Burnley hafi áhuga á að selja kappann þar sem liðið er í þriðja sæti deildarinnar og stendur því vel að vígi í baráttunni um úrvalsdeildarsæti.

Félagið gæti þó freistast til að selja kappann til að styrkja fjárhagsstöðu sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×