Enski boltinn

Suarez: Stigin þrjú skipta mestu máli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Luis Suarez var hógvær í viðtölum við fjölmiðla eftir afrek gærkvöldsins en þá skoraði hann fjögur mörk auk þess að leggja upp eitt í 5-1 sigri á Norwich.

„Það mikilvægasta er að við unnum leikinn. Ég hjálpaði liðinu í dag er mjög hamingjusamur vegna þess,“ sagði Suarez.

Liverpool tapaði fyrir Hull um helgina og Suarez sagði það mikilvægt að hafa komist aftur á beinu brautina.

„Við spiluðum ekki vel í þeim leik. En við erum sterkir á heimavelli og verðum að vinna þá leiki. Ég tel að það hafi verið mikilvægt.“

Suarez er fyrsti leikmaðurinn í sögu Liverpool sem hefur nú skorað þrjár þrennur gegn sama félaginu. „Ég vissi ekkert af þessu fyrir leikinn en einhverjir leikmenn sögðu mér frá þessu eftir leikinn. Mér líður ekkert öðruvísi þegar ég spila gegn Norwich og það mikilvægasta er að ég reyndi að hjálpa liðinu.“

„Ég skoraði í dag en frammistaða liðsins alls var mjög góð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×