Enski boltinn

Bað Wenger afsökunar | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arsenal gengur allt í haginn þessa dagana og liðið situr í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Liðið vann 2-0 sigur á Hull í gærkvöldi og eru því enn með fjögurra stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Stuðningsmenn liðsins eru vitanlega í skýjunum en eins og þessi kappi hér fyrir ofan voru margir óánægðir með störf knattspyrnustjórans Arsene Wenger á þessum tíma í fyrra.

En nú er allt fyrirgefið og spurning hvort að Wenger taki afsökunarbeiðni þessa stuðningsmanns til greina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×