Enski boltinn

Rio fer til Rio

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Rio Ferdinand er á leið til Brasilíu næsta sumar þar sem hann verður hluti af fjölmiðlateymi breska ríkisútvarpsins, BBC.

Ferdinand, sem leikur með Manchester United, spilaði 81 landsleik á sínum ferli og fór fjórum sinnum á HM með enska landsliðinu.

„Ég vil bjóða áhorfendum upp á annars konar greiningu og innsýn í leik enska liðsins,“ sagði Ferdinand í viðtali á BBC. Meðal annarra sparkspekinga BBC má nefna Gary Lineker, Alan Shearer og Phil Neville.

Ferdinand er 35 ára gamall og hefur verið í herbúðum Manchester United síðan 2002. Hann spilaði í fjórtán ár með landsliðinu, síðast árið 2011.

Hann var óvænt valinn í enska landsliðið í mars á þessu ári en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Hann tilkynnti svo í maí að hann væri hættur að gefa kost á sér í landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×