Liverpool eina toppliðið í gírnum - öll úrslit dagsins í enska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2013 14:30 Luis Suarez skorar hér seinna markið sitt í dag. Mynd/NordicPhotos/Getty
Liverpool var eina liðið inn á topp fjögur sem vann sinn leik í ensku úrvalsdeildinni í dag og komst fyrir vikið upp í annað sæti deildarinnar. Chelsea tapaði 2-3 á útivelli á móti Stoke og Manchester City náði aðeins jafntefli á útivelli á móti Southampton. Þetta var því mjög góður dagur fyrir Arsenal-menn sem geta náð sjö stiga forskoti á toppnum með sigri á Everton á morgun. Tony Pulis er heldur betur farinn að láta til sín taka hjá Crystal Palace en liðið fór úr botnsætinu með sigri á West Ham í vikunni og fylgdi því síðan eftir með því að vinna 2-0 sigur á Cardiff City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Luis Suárez heldur áfram að raða inn mörkum í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en hann skoraði tvö síðustu mörkin í 4-1 sigri Liverpool á West Ham á Anfield. Varamaðurinn Oussama Assaidi tryggði Stoke öll stigin á móti Chelsea þegar hann skoraði sigurmarkið á lokamínútunni í 3-2 sigri á Britannia-leikvanginum. Southampton og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli en Pablo Osvaldo skoraði jöfnunarmark Southampton skömmu fyrir hálfleik. Sergio Agüero kom Manchester City yfir strax á tíundu mínútu leiksins en leikmenn Southampton unnu sig vel inn í leikinn og tókst að jafna fyrir hlé. Norwich kom til baka eftir skellinn á móti Liverpool í vikunni oig vann 2-0 útisigur á West Bromwich. Fyrir vikið höfðu liðin sætaskipti í töflunni.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Manchester United - Newcastle 0-1 0-1 Yohan Cabaye (61.)Crystal Palace - Cardiff 2-0 1-0 Cameron Jerome (6.), 2-0 Marouane Chamakh (58.)Liverpool - West Ham 4-1 1-0 Sjálfsmark (42.), 2-0 Mamadou Sakho (47.), 2-1 Sjálfsmark Martin Skrtel (66.), 3-1 Luis Suárez (81.), 4-1 Luis Suárez (84.)Southampton - Manchester City 1-1 0-1 Sergio Agüero (10.), 1-1 Pablo Osvaldo (42.)Stoke - Chelsea 3-2 0-1 André Schürrle (10.), 1-1 Peter Crouch (42.), 2-1 Stephen Ireland (50.), 2-2 André Schürrle (53.), 3-2 Oussama Assaidi (90.)West Bromwich - Norwich 0-2 0-1 Gary Hooper (13.), 0-2 Leroy Fer (89.)
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Glímdi við augnsjúkdóm Sport Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira