Enski boltinn

Fyrsti sigur Newcastle á Old Trafford í 41 ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Yohan Cabaye fagnar sigurmarki sínu.
Yohan Cabaye fagnar sigurmarki sínu. Mynd/AFP
Newcastle sótti þrjú stig á Old Trafford í fyrsta sinn síðan 1972 þegar liðið vann 1-0 sigur á Manchester United í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Frakkinn Yohan Cabaye skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega klukkutíma leik.

Manchester United tapaði þarna sínum öðrum heimaleik á fjórum dögum en United hafði ekki tapað tveimur deildarleikjum í röð á Old Trafford síðan 2002. United-liðið hefur nú tapað þrettán stigum í fyrstu átta heimaleikjum sínum undir stjórn David Moyes og það lítur út fyrir að liðið sé búið að missa af lestinni í baráttunni um enska meistaratitilinn.

Newcastle-liðið fagnaði þarna frábærum sigri en liðið átti frábæran nóvember-mánuð og reif sig upp í dag eftir 3-0 tap á móti Swansea í vikunni.

Robin van Persie lék sinn fyrsta leik í langan tíma en náði ekki á strik og þá var Manchester United liðið án Wayne Rooney sem tók út leikbann.

Fyrri hálfleikurinn var í daufara lagi en Manchester United byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og fékk tækifæri til að komast yfir á upphafsmínútum hans.

Tim Krul varði vel frá bæði Javier Hernandez og Adnan Januzaj og svo bjargaði Vurnon Anita á marklínunni eftir skalla Patrice Evra. Þegar betur var á gáð þá fór boltinn í hönd Anita og United-liðið átti því að fá vítaspyrnu.

Það voru hinsvegar leikmenn Newcastle sem komu boltanum í markið þegar Yohan Cabaye skoraði með skoti úr teignum á 61. mínútu eftir flottan undirbúning Moussa Sissoko.

Robin van Persie jafnaði metin með skalla á 72. mínútu en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

Manchester United ógnaði lítið í lokin og það var mjög skrýtið að horfa upp á andleysi leikmanna liðsins á lokakafla leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×