Enski boltinn

Suarez áfram á skotskónum í sigri Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Luis Suárez heldur áfram að raða inn mörkum í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en hann skoraði tvö síðustu mörkin í 4-1 sigri Liverpool á West Ham á Anfield í dag.

Luis Suárez hefur þar með skorað sex mörk á fjórum dögum en hann skoraði fernu í 5-1 sigri á Norwich á miðvikudagskvöldið.

Liverpool var í stórsókn allan leikinn en það kom smá stress í leik liðsins eftir að sjálfsmark Martin Škrtel minnkaði muninn í 2-1.

Luis Suárez skoraði þriðja markið á 81. mínútu og skömmu síðar fékk Kevin Nolan beint rautt spjald. Suárez bætti síðan öðru marki við á 84. mínútu og er þar með kominn með fimmtán mörk í tíu leikjum.

Fyrsta mark Liverpool var sjálfsmark Guy Demel eftir að Jussi Jääskelainen varði skot Luis Suárez en Mamadou Sakho kom Liverpool síðan í 2-0 eftir aukaspyrnu frá Steven Gerrard.

Luis Suárez skoraði fyrra mark sitt með skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Glen Johnson og það síðara með skot fyrir utan teig sem fór af varnarmanni og í markið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×