Enski boltinn

Southampton náði í stig á móti Manchester City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Southampton og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag en Pablo Osvaldo skoraði jöfnunarmark Southampton skömmu fyrir hálfleik.

Southampton byrjaði tímabilið frábærlega en kom inn í leikinn með þrjú töp í röð á bakinu. Það var því mjög mikilvægt að ná í stig á móti mjög öflugum andstæðing.  

Manchester City hefur unnið alla sjö heimaleiki sína en aðeins tvo af átta útileikjum sínum. Það er ljóst að liðið kemur sér ekki að alvöru inn í titilbaráttunni fyrr en liðið fer að landa fleiri stigum utan Ethiad-leikvangsins.

Sergio Agüero kom Manchester City yfir strax á tíundu mínútu leiksins en leikmenn Southampton unnu sig vel inn í leikinn og tókst að jafna fyrir hlé.

Þetta jafntefli og sigur Liverpool á sama tíma þýðir að Manchester City er nú komið niður í fjórða sæti deildarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×