Enski boltinn

Crystal Palace með annan sigurinn í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marouane Chamakh fagnar marki sínu.
Marouane Chamakh fagnar marki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Tony Pulis er heldur betur farinn að láta til sín taka hjá Crystal Palace en liðið fór úr botnsætinu með sigri á West Ham í vikunni og fylgdi því síðan eftir með því að vinna 2-0 heimasigur á Cardiff City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Crystal Palace fékk aðeins fjögur stig í fyrstu ellefu leikjum sínum en hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum þar af tvo þeirra eftir að Pulis tók við.

Cameron Jerome kom Crystal Palace í 1-0 strax á sjöttu mínútu eftir sendingu frá Jason Puncheon en Marouane Chamakh, hetja liðsins í vikunni, skoraði síðan seinna markið á 58. mínútu.

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sat allan leikinn á varamannabekknum hjá Cardiff City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×