Enski boltinn

Arsenal og Liverpool berjast um ungan Tyrkja

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Eftirsóttur
Eftirsóttur mynd/nordic photos/getty
Ensku úrvalsdeildarliðin Arsenal og Liverpool eygja Hakan Calhanoglu sem leikur fyrir Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Calhanoglu er 19 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur vakið verðskuldaða athygli.

Hamburg hefur ekki gengið sem skyldi í vetur og er fyrir neðan miðju í deildinni. Litlar líkur eru á að liðið nái Meistaradeildarsæti og því er líklegt að liðið sé tilbúið að hlusta á tilboð í Tyrkjan unga sem hefur skoraði 4 mörk í 14 leikjum fyrir liðið.

Arsenal hefur lengi fylgst með leikmanninum og nú hefur Liverpool blandað sér í baráttuna um hann. Líklegt þykir að Calhanoglu geti valið úr félögum í janúar þegar félagaskiptaglugginn opnar verði Hamburg tilbúið að hlusta á tilboð í  hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×