Enski boltinn

Arsenal og Tottenham drógust saman í enska bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson í leik á móti Arsenal.
Gylfi Þór Sigurðsson í leik á móti Arsenal. Mynd/NordicPhotos/Getty
Það verður risaslagur í 3. umferð ensku bikarkeppninnar en dregið var í 64 liða úrslitin í dag. Lundúnaliðin og erkifjendurnir Arsenal og Tottenham drógust saman en þetta er fyrsta umferðin eftir að ensku úrvalsdeildarliðin koma inn í bikarinn.

Það verða fleiri leikir á milli úrvalsdeildarliða því Norwich mætir Fulham, Manchester United tekur á móti Swansea á Old Trafford, West Bromwich Albion drógst á móti Crystal Palace og Newcastle fær heimaleik á móti Aron Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff.

Liverpool fær heimaleik á móti annaðhvort Oldham eða Mansfield og Chelsea fékk útileik á móti Derby County. Manchester City mætir Blackburn á útivelli.

Leikirnir í 3. umferð ensku bikarkeppninnar fara fram helgina 4. til 5. janúar 2014. Hér fyrir neðan má sjá alla leikina.



Leikir í 3. umferð ensku bikarkeppninnar:

Bournemouth - Fleetwood eða Burton

Derby - Chelsea

Ipswich - Preston

Grimsby - Huddersfield

Birmingham - Bristol Rovers eða Crawley

Arsenal - Tottenham

Brighton - Reading

Everton - QPR

Blackburn - Manchester City

Bolton - Blackpool

Sunderland - Carlisle

Macclesfield - Sheffield Wednesday

Aston Villa - Sheffield United

Norwich - Fulham

Port Vale - Plymouth

Manchester United - Swansea

Charlton - Wrexham eða Oxford

Wigan - MK Dons

Rochdale - Leeds

Newcastle - Cardiff

Southampton - Burnley

Stoke - Leicester

Doncaster v Stevenage

Kidderminster - Peterborough

West Brom - Crystal Palace

Middlesbrough - Hull

Southend - Millwall

Bristol City - Watford

Nottingham Forest - West Ham

Liverpool - Oldham eða Mansfield

Yeovil - Leyton Orient eða Coventry




Fleiri fréttir

Sjá meira


×