Vona að Caulker snúi baki við Englandi og velji Skotland Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. nóvember 2013 20:30 Caulker grínast í Chris Smalling á landsliðsæfingu síðastliðið vor. Mynd/EPA
Barátta knattspyrnulandsliða heimsins um leikmenn heldur áfram. Nú vilja Skotar fá enskan landsliðsmann yfir landamærin. Steven Caulker, liðsfélagi Arons Einar Gunnarssonar hjá Cardiff í ensku úrvalsdeildinni, hefur leikið vináttuleik fyrir England. Hann skoraði reyndar í honum og hefur því heldur betur góða tölfræði í landsleikjum hjá miðverðinum. Þar sem leikurinn var ekki keppnisleikur gæti Caulker sótt um að spila fyrir Skotland. Amma hans er skosk sem ætti að vera næg ástæða til að spila fyrir hönd þjóðarinnar. „Eins og ég skil reglurnar ætti honum að vera þetta frjálst. Við þekkjum hann og fylgdumst vel með honum hjá Tottenham,“ segir Mark McGhee, aðstoðarþjálfari skoska landsliðsins. Hann segir Skota með öll net úti í leit að styrkingu fyrir landsliðið. „Ég efast um að það séu margir leikmenn þarna úti sem gætu spilað fyrir Skotland sem við höfum misst af. Við höldum samt öllu opnu og þetta er í höndum þjálfarans. Við vinnum eftir settum reglum,“ sagði McGhee og bætti við: „Að því sögðu þá hvet ég alla skoska leikmenn sem við vitum ekki af til þess að hringja í okkur.“ Athygli vakti þegar Aron Jóhannsson kaus að leika fyrir Bandaríkin frekar en Ísland. Aron spilaði með yngri landsliðum Íslands. Sömuleiðis hefur brasiíski framherjinn Diego Costa fengið grænt ljós á að spila fyrir Spánverja þrátt fyrir að hafa spilað með Brasilíu í vináttuleikjum.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira