Kostuðu 22 milljarða en hafa aðeins skorað fimm mörk Stefán Árni Pálsson skrifar 4. nóvember 2013 15:30 Stevan Jovetic hefur ekki komist á blað í deildinni með City nordicphotos/getty
Dýrustu knattspyrnumenn heimsins eru ávallt þeir sem skora mörkin. Peningar kaupa hinsvegar ekki mörk og menn verða að standa fyrir sínu þegar þeir koma í ensku úrvalsdeildina. Liðin í ensku úrvalsdeildinni eyddu gríðarlegum fjármunum í leikmannakaup í sumar og hafa þau ekki öll skilað sínu. Nú þegar tíu umferðum er lokið í ensku úrvalsdeildinni er fróðlegt að skoða hvernig nýju leikmenn liðanna eru að standa sig og þá sérstaklega þeir sem eiga að skora mörkin. Andy Carrol var keyptur á 15 milljónir punda til West Ham United frá Liverpool en sökum meiðsla hefur hann ekkert getað leikið með liðinu og því ekki skorað mark. Stevan Jovetic kom til Manchester City frá Fiorentina en hann hefur aðeins verið einu sinni í byrjunarliði City á tímabilinu og ekki enn skorað mark í deildinni. Pablo Osvaldo kom til Southampton frá Roma í ágúst á 15 milljónir punda og hefur hann aðeins skorað eitt mark með liðinu gegn Crystal Palace. Jozy Altidore kostaði Sunderland 6,5 milljónir punda í sumar og kom hann frá AZ Alkmaar en eftir tíu leiki en hann hefur ekki enn náð að skora fyrir liðið sem berst fyrir sæti sínu í deildinni. Hollendingurinn Ricky van Wolfswinkel gekk í raðir Norwich City frá Sporting Lisbon í sumar á 8,5 milljónir punda. Hann skoraði í fyrsta leik sínum fyrir félagið gegn Everton í fyrstu umferð en síðan ekki söguna meir. Gary Hooper kom einnig til Norwich City frá Celtic á fimm milljónir punda en hann hefur lítið spilað vegna meiðsla og ekkert mark skorað. Victor Anichebe kom til West Brom frá Everton á sex milljónir punda og hefur hann ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði WBA og ekki skorað eitt einasta mark. Dwight Gayle kom til nýliða Crystal Palace frá Peterborough á sex milljónir punda en hann hefur skorað tvö mörk í tíu leikjum fyrir botnliðið. Paul Lambert, knattspyrnustjóri Aston Villa, fékk til liðsins Libor Kozak frá Lazio fyrir tímabilið og hefur skorað eitt mark fyrir Villa. Andreas Cornelius var keyptur til nýliða Cardiff City en vegna meiðsla hefur hann varla komið við sögu með liðinu og ekkert mark skorað. Hann kostaði 7.5 milljónir punda. Arouna Kone kostaði Everton sex milljónir punda en leikmaðurinn hefur ekki komist á blað með liðinu. Liverpool festi síðan kaup á Iago Aspas frá Celta de Vigo á 7,2 milljónir punda og hefur ekki komist á blað með liðinu.
Enski boltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira