Enski boltinn

Stuðningsmaður Liverpool skaut vin sinn eftir tapið gegn Arsenal

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki.
Myndin tengist fréttinni ekki. Nordicphotos/Getty
Lögreglumaður í Suður-Afríku hefur verið handtekinn en hann er sakaður um að hafa reynt að myrða vin sinn. Atvikið átti sér stað nokkrum mínútum eftir 2-0 sigur Arsenal á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Vitni segja að lögreglumaðurinn hafi tekið fram byssu sína og skotið félagann í brjóstkassann. Voru þeir tveir ásamt fleirum í grillveislu í Durban þar sem fjölmargir stuðningsmenn Manchester United gerðu grín að vini sínum vegna taps Liverpool.

Eitt vitnið segir lögreglumanninn hafa dregið fram byssuna og kallað: „Manchester United, hvaða lið er það?“ og hleypt af. Félaginn hneig til jarðar og var í kjölfarið færður á sjúkrahús alvarlega slasaður á lunga og lifur.

Lögreglumaðurinn hefur verið ákærður fyrir tilraun til morðs. Nánar á vef Mirror.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×