Enski boltinn

Suarez: Ég er hamingjusamur hjá Liverpool

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Suarez fagnar marki gegn West Brom á dögunum. Hann skoraði þrennu í leiknum.
Suarez fagnar marki gegn West Brom á dögunum. Hann skoraði þrennu í leiknum. Nordicphotos/Getty
Luis Suarez er sæll og glaður sem leikmaður Liverpool og vill hvergi annars staðar vera.

Framherjinn umdeildi hefur blásið á orðróm þess efnis að hann sé á leiðinni til Real Madrid í félagaskiptaglugganum. Hann segist ánægður hjá Rauða hernum.

„Ég kannast ekkert við áhuga frá Real Madrid og ég nýt mín hjá Liverpool,“ sagði Suarez við Sport 890 útvarpsstöðina í Úrúgvæ.

„Það er mikil spenna í hópnum og tilhlökkun til góðrar leiktíðar. Við höfum verið í toppbaráttunni hingað til og horfum til toppsins. Gengið er gott og við getum vel trúað því að efsta sætið verði okkar.“

Suarez angraði margan stuðningsmann Liverpool í sumar með eilífum yfirlýsingum um framtíð sína. Margir snerust gegn honum en hann virðist hafa snúið ansi mörgum með frábærri frammistöðu á leiktíðinni.

„Mér finnst ég hluti af góðum hlutum hjá Liverpool. Mér líður vel og er hamingjusamur. Ég legg hart að mér fyrir félagið og verð alltaf þakklátur félaginu og liðsfélögunum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×