Frábær mörk hjá Fulham í sigri í Lundúnaslag | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2013 18:30
Fulham náði sér í þrjú mikilvæg stig í neðri hlutanum með því að vinna 4-1 útisigur á nýliðum Crystal Palace í kvöld í lokaumferð áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Crystal Palace komst yfir í leiknum en Fulham svaraði með tveimur frábærum mörkum og gerði síðan út um leikinn með tveimur mörkum snemma í seinni hálfleiknum. Pajtim Kasami, Steve Sidwell, Dimitar Berbatov og Philippe Senderos skoruðu mörk Fulham í kvöld. Þetta var annar deildarsigur Fulham í röð en liðið fékk aðeins eitt stig í fimm leikjum þar á undan. Sigurinn kemur Fulham upp í 14. sæti deildarinnar. Crystal Palace tapaði aftur á móti sínum fimmta deildarleik í röð og liðið situr áfram í næstneðsta sæti deildarinnar. Adrian Mariappa kom Palace í 1-0 strax á 7. mínútu með laglegum skalla en Pajtim Kasami jafnaði með stórbrotnu marki á 19. mínútu. Kasami tók þá langa sendingu niður á kassann og hamraði boltann viðstöðulaust í fjærhornið - eitt af mörkum tímabilsins. Steve Sidwell kom Fulham yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks með öðru glæsilegu marki og Dimitar Berbatov skoraði síðan með skalla á 50. mínútu eftir hornspyrnu Bryan Ruiz. Philippe Senderos skoraði síðan fjórða markið fimm mínútum síðar þegar hann klippti boltann eftir annað flott horn frá Bryan Ruiz. Þetta var í fyrsta sinn síðan í nóvember 2004 að liði Fulham tókst að skora fjögur mörk í útileik í ensku úrvalsdeildinni eða síðan að Fulham vann 4-1 sigur á Newcastle fyrir rétt tæpum níu árum.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Fleiri fréttir Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Sjá meira