Beckham hélt að hann væri orðinn stærri en Alex Ferguson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2013 17:15 Sir Alex Ferguson og David Beckham. Mynd/NordicPhotos/Getty
Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United og einn sigursælasti stjóri knattspyrnusögunnar, gaf í dag út nýja ævisögu, My Autobiography, þar sem tjáir sig meðal annars um kringumstæðurnar þegar David Beckham yfirgaf félagið sumarið 2003. Sir Alex er harður á því að David Beckham hafi valið frægðina yfir það að vera goðsögn hjá Manchester United. Beckham var 28 ára þegar hann yfirgaf Old Trafford þá búinn að skora 62 mörk í 265 deildarleikjum og hafði unnið sex meistaratitla með félaginu. Ferguson var líka allt annað en hrifinn af því þegar David Beckham samdi við bandaríska félagið Los Angeles Galaxy árið 2007. „Hann gaf fótboltann upp á bátinn og nýja markmið hans var þá heimsfrægð utan fótboltans," skrifaði Sir Alex Ferguson í bókinni sinni. Ferguson talar samt vel um Beckham sem hann segir hafa verið eins og son sinn. Skoski stjórinn skrifar meðal annars um fræga uppákomu í búningsklefanum þegar Ferguson sparkaði skó í David Beckham. Sir Alex kenndi þá Beckham um seinna markið í 0-2 tapi á móti Arsenal í enska bikarnum. „Auðvitað ætlaði hann að vaða í mig en liðsfélagarnir hans stoppuðu hann. Ég sagði: Sestu niður. Þú hefur brugðist liðinu þínu," skrifaði Sir Alex Ferguson um atvikið. Ferguson segist ennfremur þá hafa áttað sig á einu: „David Beckham hélt að hann væri orðinn stærri en Alex Ferguson," skrifar Sir Alex Ferguson og þá varð honum ljóst að hann yrði að selja Beckham. Ferguson er líka viss um að David Beckham hafi verið byrjaður að tala við Real Madrid fyrr en þetta sumar þegar hann fór til Spánar.
Enski boltinn Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Fleiri fréttir Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Sjá meira