Gaf í skyn að börnin bæru sök Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. október 2013 10:30 Jozef Michalik erkibiskup. Mynd/AP
Józef Michalik, erkibiskup kaþólsku kirkjunnar í Póllandi, hefur sætt harðri gagnrýni fyrir ummæli sínu þar sem hann gaf í skyn að fórnarlömb barnaníðs presta ættu stundum sjálf sökina. Michalik tjáði sig við fjölmiðla fyrr í þessum mánuði um pólska presta sem hafa orðið uppvísir að barnaníði, og sagði þá að barn, sem kemur úr erfiðum fjölskylduaðstæðum, „leiti eftir nánd við aðra og geti tapað sér og geti líka flækt mótaðilann í það.” Þessi ummæli vöktu strax hörð viðbrögð, en Michalik brást við samdægurs, baðst afsökunar og sagðist hafa verið misskilinn. Hann hafi engan veginn ætlað að gefa í skyn að barnaníð geti verið börnunum sjálfum að kenna. Það dugði þó ekki til. Stjórnmálamenn jafnt sem almenningur hafa látið undrun og reiði í ljós og umræðan er ekkert að dvína, nú hálfum mánuði síðar. Fjölmiðlar hafa rifjað upp að Michalik hafi á sínum tíma komið presti til varnar sem árið 2004 hlaut dóm fyrir barnaníð. „Orð Michaliks erkibiskups vekja með okkur ótta og viðbjóð,” segir Ewa Orlowska, ein þeirra sem varð fyrir barðinu á þeim presti. Frá árinu 2001 hafa 27 pólskir prestar verið ákærðir fyrir barnaníð. Flestir fengu þeir skilorðsbundinn dóm, sem hefur verið túlkað sem svo að dómskerfið hneigist til að taka mildum höndum á kaþólsku kirkjunni.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Fleiri fréttir Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Sjá meira