Zola stoltur en hefur ekki áhuga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. september 2013 08:00
Sunderland er í knattspyrnustjóraleit. Margir hafa verið nefndir til sögunnar en óvíst er hversu margir hafi í raun áhuga á að stýra skútu félagsins. Paolo Di Canio var rekinn á sunnudagskvöldið eftir 3-0 tap gegn West Brom. Talið er að leikmenn hafi sjálfir óskað eftir því að Ítalinn yrði rekinn en hann á að hafa ögrað þeim að loknu tapinu á The Hawthorns. Di Canio gerði miklar breytingar á starfsumhverfi leikmanna hjá Sunderland. Eftir að hafa orðið uppáhald stuðningsmanna eftir 3-0 sigur á grönnunum í Newcastle í vor, þar sem fagnaðarlæti hans vöktu athygli víða, fór að halla undan fæti. Liðið hafði ekki unnið í tólf leikjum og útlitið slæmt. „Auðvitað er ég stoltur að nafn mitt sé nefnt í umræðunni. Ég er hins vegar afar ánægður hjá Watford og kann vel við starf mitt,“ segir Ítalinn Gianfranco Zola. Zola segist hafa vaxið í starfi sem stjóri Watford og vilji ljúka verkefni sínu hjá liðinu. Roberto di Matteo, Alex McLeish, Tony Pulis og Gustavo Poyet er einnig orðaðir við starfið. Það ætti ekki að koma á óvart enda allir á lausu og í leit að starfi. Breskir fjölmiðlar segja þó starfið hjá Sunderland ekki jafn eftirsóknarvert og alla jafna hjá félögum í deildinni. Munar þar miklu hve marga leikmenn Di Canio hafi fengið til félagsins úr mörgum áttum á skömmum tíma. Í spilaranum að ofan má sjá síðustu mörkin sem Sunderland fékk á sig í stjóratíð Di Canio.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn Sagan með Val en KR á flugi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn