Enski boltinn

Zola stoltur en hefur ekki áhuga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sunderland er í knattspyrnustjóraleit. Margir hafa verið nefndir til sögunnar en óvíst er hversu margir hafi í raun áhuga á að stýra skútu félagsins.

Paolo Di Canio var rekinn á sunnudagskvöldið eftir 3-0 tap gegn West Brom. Talið er að leikmenn hafi sjálfir óskað eftir því að Ítalinn yrði rekinn en hann á að hafa ögrað þeim að loknu tapinu á The Hawthorns.

Di Canio gerði miklar breytingar á starfsumhverfi leikmanna hjá Sunderland. Eftir að hafa orðið uppáhald stuðningsmanna eftir 3-0 sigur á grönnunum í Newcastle í vor, þar sem fagnaðarlæti hans vöktu athygli víða, fór að halla undan fæti. Liðið hafði ekki unnið í tólf leikjum og útlitið slæmt.

„Auðvitað er ég stoltur að nafn mitt sé nefnt í umræðunni. Ég er hins vegar afar ánægður hjá Watford og kann vel við starf mitt,“ segir Ítalinn Gianfranco Zola.

Zola segist hafa vaxið í starfi sem stjóri Watford og vilji ljúka verkefni sínu hjá liðinu.

Roberto di Matteo, Alex McLeish, Tony  Pulis og Gustavo Poyet er einnig orðaðir við starfið. Það ætti ekki að koma á óvart enda allir á lausu og í leit að starfi. Breskir fjölmiðlar segja þó starfið hjá Sunderland ekki jafn eftirsóknarvert og alla jafna hjá félögum í deildinni. Munar þar miklu hve marga leikmenn Di Canio hafi fengið til félagsins úr mörgum áttum á skömmum tíma.

Í spilaranum að ofan má sjá síðustu mörkin sem Sunderland fékk á sig í stjóratíð Di Canio.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×