Enski boltinn

Arsenal aftur á toppinn

Ramsey skorar annað mark Arsenal í kvöld.
Ramsey skorar annað mark Arsenal í kvöld.
Arsenal hrifsaði toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar aftur af Tottenham í kvöld er liðið vann fínan útisigur, 1-2, á Swansea.

Fyrri hálfleikur var lítið fyrir augað en Gnabry kom Arsenal á bragðið í seinni hálfleik. Aðeins fjórum mínútum síðar bætti Aaron Ramsey marki við fyrir Arsenal en hann er óstöðvandi þessa dagana.

Davies minnkaði muninn fyrir Swansea en nær komust heimamenn ekki.

Arsenal með 15 stig á toppnum en Spurs í öðru sæti með 13 stig.

Staðan í ensku úrvalsdeildinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×