Mögulega ákveðið í vikunni hvort ráðist verði á Sýrland Hrund Þórsdóttir skrifar 8. september 2013 12:00 Aðstandendur syrgja í Sýrlandi.
Bandaríska þingið kemur saman á morgun eftir sumarhlé og greiðir líklega atkvæði um mögulega árás á Sýrland nú í vikunni, bæði í fulltrúadeildinni og í öldungadeild þingsins. Bandarísk stjórnvöld saka þau sýrlensku um að bera ábyrgð á efnavopnaárás í Damaskus, þann 21. ágúst síðastliðinn, sem kostaði yfir 1400 manns lífið. Um hundrað þúsund manns hafa látist í átökunum í Sýrlandi undanfarið tvö og hálft ár. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hvetur þingið til að standa sameinað í málinu og hefur varað við því að þjóðir heimsins sitji aðgerðalausar hjá ofbeldinu í Sýrlandi. Hans bíður það erfiða verkefni að sannfæra þingið um að heimila hernaðaríhlutun. Samkvæmt könnun fréttastöðvanna BBC og ABC News er yfir þriðjungur þingmanna enn óákveðinn í málinu og meirihluti þeirra sem hafa ákveðið sig hyggjast ekki styðja tillögu forsetans um inngrip. Bandaríkjamenn fullyrða að stuðningur við aðgerðir í Sýrlandi fari vaxandi og segir John Kerry utanríkisráðherra, að ríki sem séu reiðubúin til að taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn sýrlenskum stjórnvöldum séu nú komin á annan tuginn. Þar með styðji í raun fleiri þjóðir aðgerðirnar, en gætu raunverulega tekið þátt í þeim, miðað við fyrirhugaðar áætlanir. "Þetta er ekki tíminn til að vera þögulir áhorfendur að slátrun," hefur Kerry sagt. ESB ríkin hafa fordæmt notkun efnavopna í sameiginlegri yfirlýsingu utanríkisráðherra þeirra en vilja bíða eftir skýrslu Sameinuðu þjóðanna um efnavopnaárásina í Damaskus áður en gripið verði til aðgerða. Stuðningur Frakka við hernaðaraðgerðirnar er lykilatriði fyrir bandarísk stjórnvöld, en Francois Hollande Frakklandsforseti, segir Frakka munu bíða skýrslunnar.
Mest lesið Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu Erlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Erlent Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Innlent „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Erlent Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Erlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Innlent Fleiri fréttir Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Sjá meira