Umfjöllun og einkunnir: Víkingur Ólafsvík - Þór 1-1 | Jafntefli hjá nýliðunum Kári Viðarsson á Ólafsvíkurvelli skrifar 11. ágúst 2013 00:01
Tíu Víkingar héldu jöfnu gegn Þórsurum í nýliðaslag í Ólafsvík í 15. umferð Pepsi-deildar karla í dag. Lokatölurnar urðu 1-1. Heimamenn komust yfir með skrautlegu marki Guðmundar Steins Hafsteinssonar en gestirnir náðu að jafna í byrjun síðari hálfleiks þegar hinn pollrólegi Mark Tubæk setti boltann snyrtilega í netið. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og pressuðu Þórsara hátt uppi á vellinum. Þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum skilaði pressan árangri. Þá sendi Mark Tubæk glórulausa sendingu aftur á Joshua Wicks í marki Þórsara. Í stað þess að skalla knöttinn yfir markið ákvað hann að skalla hann út í teiginn. Ekki vildi betur til en svo að Wicks flæktist í eigin marki við þessa takta og Guðmundur Steinn Hafsteinsson nýtti sér þau mistök með því að skalla boltann í net Þórsara. Staðan 1-0 og stúkan í hláturskasti. Leikurinn tók nýja stefnu á 39. mínútu þegar Guðmundi Steini, markaskorara Víkings, var vikið af velli eftir samstuð við Inga Frey Hilmarsson. Vilhjálmur Alvar, dómari leiksins, gaf Guðmundi umsvifalaust beint rautt spjald og það ætlaði allt um koll að keyra. Þórsarar reyndu árangurslaust að jafna fyrir hálfleik en ekkert gekk og staðan því 1-0 fyrir heimamenn. Í síðari hálfleik bökkuðu heimamenn og freistuðu þess að halda forystunni. Þetta bauð hættunni heim og endaði með því að Þórsarar jöfnuðu leikinn. Mark Tubæk fékk þá góða sendingu inn í teiginn, tók tvo menn á og lagði knöttinn snyrtilega framhjá Einari í marki Víkinga. Síðasti hálftíminn einkenndist fyrst og fremst af baráttu og miðjumoði. Hvorugt liðið náði að skapa sér dauðafæri og vart mátti sjá að Heimamenn væru manni færri. Niðurstaðan 1-1 jafntefli og Þórsarar hljóta að vera vonsviknir með að ná ekki að nýta sér liðsmuninn betur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Segist hafa skipt um hótel til að spara Fótbolti Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Enski boltinn Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Körfubolti Mikil mistök að hafa selt Viggó Handbolti Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Fótbolti Myndasyrpa: Landsliðsþjálfarar á ógleymanlegum slag í Krikanum Handbolti Deildi rúmi með pabba og fékk stuðning veikrar mömmu til að ná á toppinn Sport Fleiri fréttir Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Sagan segir að KR verði meistari „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ „Erum með montréttinn á Akureyri“ „Gerist eiginlega ekki betra“ Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Sjá meira