Erlent

13 taldir af hið minnsta vegna lestarslyssins í Quebec

Jóhannes Stefánsson skrifar
Eyðileggingin í Lac-Mégantic er gríðarleg og forstjóri flutningafyrirtækisins telur einhvern hafa átt við lestina.
Eyðileggingin í Lac-Mégantic er gríðarleg og forstjóri flutningafyrirtækisins telur einhvern hafa átt við lestina. AFP
Að minnsta kosti 13 eru látnir og afdrif fjölda annarra eru ókunnug vegna lestar sem fór út af sporinu og sprakk í Lac-Mégantic í Kanada í fyrradag. Flutningalestin var full af hráolíu og yfirmaður félagsins sem átti lestina hélt því fram í dag að átt hefði verið við lestina á einhvern hátt.

Tveimur dögum eftir slysið er enn ekki hægt að komast að brakinu vegna eyðileggingarinnar og því er ekkert vitað um fjölda látinna að svo stöddu.

„Þetta eru mjög erfiðar aðstæður," sagði Don Ross, yfirmaður kanadíska rannsóknarteymisins sem rannsakaði slysið. „Þetta er risastórt slys með hræðilegum afleiðingum. Um leið og slökkvilið og aðrir sérfræðingar hleypa okkur á svæðið, erum við tilbúin og förum strax."

Tekist hefur að hafa upp á svarta kassa lestarinnar sem gæti veitt vísbendingar um það hvernig slysið bar að. Lestin samanstóð af 72 lestarvögnum sem runnu 11 kílómetra niður í móti áður en lestin fór út af sporinu með fyrrgreindum afleiðingum.

Ed Burkhardt, forstjóri Montreal, Maine & Atlantic flutningafyrirtækisins sagði að hann væri viss um að einhver hefði átt við lestina. „Við höfum sannanir sem benda til þessa, en þetta er eitthvað sem þarfnast nánari rannsóknar. Við þurfum að ræða við fólk sem við teljum að viti um þetta," sagði Burkhardt í samtali við The Montreal Gazette. Hann telur maðk vera í mysunni.

Slökkviliðsmenn á svæðinu segjast aldrei hafa séð aðra eins eyðileggingu og varð, en gríðarlegt eldhaf blossaði upp vegna olíunnar sem var um borð í tönkum lestarinnar. „Meira að segja malbikið brann. Göturnar eru orðnar að mold vegna þess að hitinn var svo mikill."

Dánardjómstóri Quebec sagði að eldurinn hafi verið svo gríðarlegur að einhver þeirra 40 sem ekki er búið að finna hafi líkast til gufað upp samstundis. Það gætu því verið mörg ár þar til hægt er að bera kennsl á öll fórnarlömbin, ef það verður þá einhvern tíma hægt.

Þetta kemur fram á vef NBC News.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×