Ógeðfelldur fréttaflutningur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. maí 2013 13:00 Nordic Photos / Getty Images
Umboðsmaður Christian Benteke segir það alveg ljóst að blaðamaður The Sun hafði rangt eftir skjólstæðingi sínum í viðtali sem birtist í dag. Í umfjöllun blaðsins var Benteke orðaður við flest stóru liðin í ensku úrvalsdeildinni og gefið í skyn að hann myndi gera allt sem gæti til að losna frá félaginu. Benteke sló í gegn hjá Aston Villa á nýliðnu tímabili og hefur verið orðaður við önnur og sterkari lið í ensku úrvalsdeildinni. „Christian og ég erum furðu lostnir yfir frétt sem birtist í The Sun. Það var rangt haft eftir honum,“ sagði umboðsmaðurinn við enska fjölmiðla. „Það eina sem er rétt er Christian vill ekki koma af stað stríði við Aston Villa. Hann hringdi í mig frá New York í dag og finnst fréttaflutningurinn ógeðfelldur.“ „Ég sagði honum að tala ekki við fleiri fjölmiðlamenn úr þessu. Það er eðlilegt að það sé áhugi á honum en hvorki ég né Christian ætlum að búa til einhver vandamál.“ Fyrr í morgun sagði Paul Lambert, stjóri Aston Villa, að ummælin hefðu komið honum á óvart. „Ég veit ekki hvað gerðist nákvæmlega en hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Aston villa.“ „Ég held að við þurfum að koma niður á jörðina. Strákurinn er rétt að byrja og er búinn að vera í Bretlandi í aðeins tíu mánuði. Allir elska hann hjá Aston Villa.“ „Hann má ekki gleyma að hann er bara 22 ára gamall. Hann á enn margt eftir ólært.“
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira