Erlent

Skartgriparán á kvikmyndahátíðinni í Cannes

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Lögreglumaður á varðbergi við Novotel-hótelið í morgun.
Lögreglumaður á varðbergi við Novotel-hótelið í morgun. Mynd/AFP

Skartgripum að verðmæti rúmlega 120 milljóna króna var stolið á hóteli í Cannes í gærkvöldi.

Hin árlega kvikmyndahátíð fer fram í borginni um þessar mundir og voru skartgripirnir, sem eru frá svissneska skartgripasmiðnum Chopard, ætlaðir til útláns fyrir stjörnurnar.

Þjófarnir brutust inn í starfsmannaherbergi Novotel-hótelsins og tóku gripina úr öryggishólfi og hurfu síðan á braut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×