Erlent

Beyoncé ófrísk

Beyoncé og Jay-Z á góðri stundu
Beyoncé og Jay-Z á góðri stundu Nordicphotos/getty

Söngstjarnan Beyoncé Knowles á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum rapparanum Jay-Z. Þetta hefur bandaríska slúðurfréttasíðan E! eftir nokkrum heimildarmönnum.

Því hefur reyndar verið haldið fram síðustu vikur að söngkonan beri barn undir belti og þá sérstaklega eftir að hún aflýsti tónleikum í Antwerpen í Belgíu á dögunum. Tónleikunum var aflýst vegna ofþreytu og vökvaskorts. „Það var mjög erfitt að taka þessa ákvörðun. Takk fyrir allar kveðjurnar. Mér líður miklu betur og er tilbúin að fara aftur á svið,“ skrifaði Beyoncé til aðdáanda sinna.

Beyoncé og Jay-Z eiga fyrir dótturina Blue-Ivy.

Frétt E!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×