Enski boltinn

Mancini ekki tilbúinn að gefast upp

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Roberto Mancini var hress í dag.
Roberto Mancini var hress í dag.
Roberto Mancini var kátur með sigur sinna manna gegn Chelsea í dag í ensku úrvalsdeildinni. Yaya Toure og Carlos Tevez skoruðu mörkin fyrir City í dag en bæði voru þau mjög góð.

„Ég get ekki hugsað að þetta sé búið þegar 11 leikir eru eftir. Þannig hugsa ég ekki og ekki heldur mínir leikmenn. Við verðum að spila áfram eins og við gerðum í dag. Bæði mörkin hjá okkur voru frábær," segir Mancini.

Mancini hrósar markverði sínum Joe Hart sem varði víti í leiknum. „Ég tel að Hart sé besti markvörðurinn í Englandi og einn sá besti í Evrópu. Ég held að hann hefði getað gert betur í aðdraganda vítisins. Hann gæti orðið fullkominn – það er mikilvægt að halda einbeitingu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×