Enski boltinn

Pochettino: Augljóst að við höldum okkur uppi

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Mauricio Pochettino á St. James' Park í dag.
Mauricio Pochettino á St. James' Park í dag.
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Southampton, er sannfærður um að liðið muni halda sér uppi í ensku úrvalsdeildinni. Liðið tapaði 4-2 fyrir Newcastle á útivelli í dag.

„Það er augljóst að við munum halda okkur uppi. Ég hef sömu áhyggjur og allir aðrir stjórar í þessum hluta deildarinnar. Ég hef mikla trú á mínu liði. Við lékum mjög vel í seinni hálfleik og áttum skilið að vinna leikinn. Það voru smáatriði sem urðu til þess að við fórum með tómar hendur frá St. James' Park," segir Pochettino.

„Ég er ekki sammála vítaspyrnudóminum. Það var algjörlega óviljandi. Ég er ósáttur með annað markið hjá Newcastle þar sem það var bæði brot og rangstæða."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×