Enski boltinn

Wilshere: Tímabilinu er ekki lokið

Wilshere var svekktur eftir fyrri leikinn gegn Bayern.
Wilshere var svekktur eftir fyrri leikinn gegn Bayern.
Þó svo Arsenal sé svo gott sem úr leik í öllum keppnum í vetur segir miðjumaður liðsins, Jack Wilshere, að tímabilinu sé ekki lokið.

Wilshere skorar á liðsfélaga sína að rífa sig upp og sýna vígtennurnar gegn Tottenham um næstu helgi.

"Tímabilinu er ekki lokið. Við eigum góðan möguleika gegn Tottenham og svo eigum við líka möguleika í seinni leiknum gegn Bayern," sagði Wilshere en Arsenal tapaði fyrri leiknum gegn Bayern í Meistaradeildinni, 3-1, á heimavelli.

"Auðvitað verður þetta erfitt en ef við mætum óttalausir getur allt gerst."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×