Enski boltinn

Liverpool hækkar tilboð sitt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. Mynd/Nordic Photos/Getty
Liverpool hefur hækkað tilboð sitt í brasilíska miðjumanninn Philippe Coutinho upp í níu milljónir evra samkvæmt heimildum Liverpool Echo en Internazionale hafnaði sex milljón evra tilbiði liðsins í síðustu viku.

Viðræður eru í gangi á milli Liverpool og Internazionale og heimildarmaður Liverpool Echo segir að það séu miklar líkur á því að Philippe Coutinho verðir orðinn leikmaður Liverpool fyrir mánaðarmótin.

Coutinho er fæddur árið 1992 og verður því 21 árs á þessu ári. Hann kom til Internazionale frá Vasco da Gama en hann var í láni hjá Espanyol á síðustu leiktíð. Brasilíumaðurinn hefur ekki fengið mörg tækifæri með Internazionale á þessari leiktíð.

Philippe Coutinho er fjölhæfur miðjumaður sem var í stóru hlutverki hjá 20 ára landsliði Brasilíu sumarið 2011. Hann hefur hraða og góða tækni, getur spilað á miðri miðjunni, út á köntunum eða fyrir aftan framherjann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×