City braut 37 ára gamalt blað með sigri á Arsenal Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. janúar 2013 13:31 Edin Dzeko fékk kjörið tækifæri til að koma City yfir á 10. mínútu en vítaspyrna hans var varin á skrautlegan hátt. Nordic Photos / Getty Images
Manchester City vann nokkuð þægilegan 2-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. City-menn spiluðu manni fleiri stærstan hluta leiksins og skoruðu bæði mörkin í fyrri hálfleik. Leikurinn var aðeins tíu mínútna gamall þegar Laurent Koscielny var vikið af velli fyrir brot á Edin Dzeko í upplögðu færi. Bosníumaðurinn misnotaði vítaspyrnuna en átti eftir að bæta fyrir það. James Milner kom gestunum yfir með frábæru marki á 21. mínútu eftir sendingu Carlos Tevez. Ellefu mínútum síðar batt Dzeko endahnútinn á góða sókn gestanna og setti boltann yfir línuna af stuttu færi. Arsenal gekk illa að skapa sér færi manni færri og City nær því að bæta við mörkum en hitt. Vincent Kompany fékk rautt spjald stundarfjórðungi fyrir leikslok fyrir brot á Jack Wilshere. Belginn verður því í banni í næstu umferð líkt og Koscielny. City minnkaði muninn á toppi deildarinnar í sjö stig á nýjan leik. Manchester United hafði náð tíu stiga forskoti fyrr í dag með sigri á Liverpool. Arsenal er áfram í sjötta sæti deildarinnar. City hafði ekki unnið Arsenal á útivelli síðan árið 1975.
Enski boltinn Mest lesið Náðu í börn látins liðsfélaga svo þau gætu verið með á gullmyndinni Sport Gat engu svarað og hótaði að reka aðstoðarfólk sitt Sport Extraleikarnir: Tommi stóð í algjörum stríðsmanni en Nabblinn sá ekki neitt Körfubolti Höfnuðu boði Trumps eftir grín hans í karlaklefanum Sport Sjáðu Sesko stinga alla af og tryggja Man. Utd þrjú stig Enski boltinn „Ef þú tækir burt vélbyssurnar væri þetta ósköp venjulegt“ Fótbolti Jürgen Klopp um Bodö: „Gæti ekki verið meiri klikkun“ Fótbolti Sex milljóna sekt fyrir að mæta seint Fótbolti Notuðu ranga mynd af nýlátinni íþróttastjörnu Sport Sögðust vera keppendur frá landi sem er ekki til Sport Fleiri fréttir Sjáðu Sesko stinga alla af og tryggja Man. Utd þrjú stig „Ég er himinlifandi með úrslitin og baráttuandann“ „Ég trúi á sjálfan mig“ Carrick er enn ósigraður og Sesko aftur hetjan „Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Þakkar opinskáum liðsfundi fyrir frammistöðu Arsenal á móti Tottenham FIFA vill að meiddir leikmenn verði utan vallar í eina mínútu „Sammála að þetta sé dýfa en þú þarft að gera þetta“ „Hann var farþegi í þessum leik“ Birtu rasískan viðbjóð sem beindist að fjórum leikmönnum Sjáðu tvennurnar, bakhrindinguna og dramað í lokin hjá Liverpool Arteta klár í baráttuna: „Tíu leikir í ensku úrvalsdeildinni eru maraþon“ Eze aftur í aðalhlutverki gegn Tottenham og Arsenal með fimm stiga forskot Fagnaði fyrir framan sótilla stuðningsmenn Dramatískt flautumark tryggði Liverpool mikilvægan sigur Kokteilar á línuna: Guardiola vill að sínir menn drekki vel og njóti Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City O'Reilly með tvennu og City andar ofan í hálsmál Arsenal Bournemouth nálgast Evrópusætin Chelsea fór illa að ráði sínu gegn Burnley Milner orðinn sá leikjahæsti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar „Mér gæti ekki verið meira sama um stöðuna í ensku úrvalsdeildinni“ Segir að sænska ríkisstjórnin megi ekki verða eins og Spurs Rooney vill halda Guardiola hjá City „Mér býður við þessu, satt best að segja“ „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Slot býst við Isak í mars og vonast eftir „bestu útgáfunni“ af honum Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Sjá meira