Benitez: Margt fór úrskeiðis í kvöld | Redknapp hrósar Taarabt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. janúar 2013 23:04 Benitez skipti Lampard af velli í síðari hálfleik. Nordicphotos/Getty
Rafael Benitez, stjóri Chelsea, var að vonum svekktur með frammistöðu sinna manna í tapinu gegn botnliði QPR á heimavelli í kvöld. QPR hafði 1-0 sigur á Brúnni með marki Shaun Wright-Phillips en þetta var aðeins annar sigur botnliðsins á leiktíðinni. „Það var margt sem fór úrskeiðis í kvöld. Við vissum að við ættum í höggi við neðsta lið deildarinnar og við ræddum það sérstaklega (fyrir leik)," sagði Benitez í viðtali eftir leikinn. Benitez hvíldi Ashley Cole og Juan Mata í kvöld og fjarvera þess síðarnefnda, sem blés lífi í leik Chelsea seint í leiknum, var dýru verði keypt. „Við vissum að við yrðum að halda einbeitingu en við höfðum ekki nægan hraða auk þess sem sumir leikmenn hafa mögulega verið þreyttir," sagði Spánverjinn. Harry Redknapp, stjóri QPR, var skiljanlega öllu sáttari með frammistöðu sinna manna. „Leikmenn mínir lögðu allt í sölurnar í kvöld og þú uppskerð þegar þú gerir það," sagði Redknapp sem hrósaði sérstaklega Adel Taarabt sem var einn í framlínu gestanna í kvöld. „Ég ræddi við hann einslega í gær og sagði honum að hann yrði frammi. Hann átti að halda boltanum og bíða aðstoðar frá liðsfélögum sínum," sagði Redknapp og hélt áfram: „Hann æfði það í tvo tíma á æfingu. Þetta var áhætta en þetta leit vel út. Ég veit ekki einu sinni hvort hann hafi spilað frammi áður," sagði Redknapp.
Enski boltinn Tengdar fréttir Wright-Phillips tryggði QPR óvæntan sigur á Chelsea QPR vann afar óvæntan sigur á Chelsea í Lundúnarslag á Stamford Bridge í kvöld. Shaun Wright-Phillips skoraði eina mark leiksins tólf mínútum fyrir leikslok. 2. janúar 2013 16:46 Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Wright-Phillips tryggði QPR óvæntan sigur á Chelsea QPR vann afar óvæntan sigur á Chelsea í Lundúnarslag á Stamford Bridge í kvöld. Shaun Wright-Phillips skoraði eina mark leiksins tólf mínútum fyrir leikslok. 2. janúar 2013 16:46