Enski boltinn

Allt um fyrstu leiki ársins í enska boltanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Nordic Photos/Getty
Þeir sem misstu af umferðinni í enska boltanum í vikunni eða vilja bara horfa á það helst aftur þá er hægt að fá flott yfirlit inn á Vísi. Eins og vanalega er nefnilega hægt að finna margskonar samantektir eftir hverja umferð ensku úrvalsdeildarinnar inn á Sjónvarpsvefnum á Vísi.

Manchester United er áfram með sjö stiga forskot á Manchester City en Tottenham náði þriðja sætinu af Chelsea eftir mjög óvæntan sigur Queens Park Rangers á Brúnni. Robin Van Persie og Luis Suarez eru tveir heitustu framherjar deildarinnar og skoruðu báðir tvö mörk fyrir sín félög.

Inn á Sjónvarpsvefnum á Vísi er nú hægt að sjá val á fimm flottustu mörkum helgarinnar sem og val á besta leikmanninum, liði umferðarinnar, flottustu markvörslunum og atviki helgarinnar.

Þar má einnig finna skemmtilegt atvik frá fyrri tímum auk þess sem hægt er að sjá myndbrot frá öllum leikjum umferðarinnar. Hér fyrir neðan eru tenglar á þessi samantektar-myndbönd.

Fallegustu mörkin



Besti leikmaður helgarinnar



Lið umferðarinnar



Flottustu markvörslurnar



Atvik helgarinnar



Skemmtilegt sögubrot






Fleiri fréttir

Sjá meira


×