Cole lagði upp tvö mörk en Van Persie tryggði United jafntefli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2013 16:45 James Collins fagnar öðru marka sinna. Mynd/Nordic Photos/Getty
Joe Cole stimplaði sig inn í lið West Ham United með glæsibrag þegar hann lagði upp bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli á móti toppliði Manchester United á Upton Park í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Manchester United komst í 1-0 en James Collins skoraði tvö keimlík skallamörg eftir fyrirgjafir frá Joe Cole. Robin Van Persie kom síðan inn á sem varamaður og jafnaði metin og liðin mætast því aftur á Old Trafford. Joe Cole er uppalinn hjá West Ham en var keyptur til liðsins frá Liverpool í vikunni. Hann var því að koma aftur á Upton Park eftir níu ára dvöl hjá Chelsea og Liverpool og það munaði örlitlu að stoðsendingar hans tryggðu liðinu sæti í fjórðu umferð bikarsins. Tom Cleverley kom Manchester United í 1-0 á 23. mínútu eftir hraða sókn og sendingu frá Javier Hernandez. James Collins jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar með flottum skalla eftir fyrirgjöf Joe Cole frá vinstri. James Collins skoraði síðan aftur með skalla eftir fyrirgjöf frá Joe Cole þegar 14 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Þannig var staðan þar til í uppbótartíma leiksins. Robin van Persie kom inn á sem varamaður á 68. mínútu og Joe Cole var farinn af velli þegar hollenski framherjinn slapp í gegn og tryggði United jafnefli og annan leik í uppbótartíma. Ryan Giggs átti þá frábæra 50 metra sendingu á Van Persie sem afgreiddi færið frábærlega en þeir komu báðir inn á sem varamenn í seinni hálfleik.
Enski boltinn Mest lesið Arnar og Andrea sigurvegarar Puffin-hlaupsins Sport Þór Ak. - KA | Montrétturinn undir á Akureyri Íslenski boltinn Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik Handbolti Alex Zanardi látinn Sport „Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Handbolti „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Íslenski boltinn Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Arsenal - Fulham | Geta náð sex stiga forystu og varpað pressunni á City Enski boltinn Fleiri fréttir Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Arsenal - Fulham | Geta náð sex stiga forystu og varpað pressunni á City Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Sjá meira