Átta ára barn lést í ódæðinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. apríl 2013 06:49 Lögreglan í Boston stendur vörð víðsvegar um borgina. Mynd/ AFP.
Nú er ljóst að minnst þrír fórust í sprengjuárásum í Boston í Massachusettes í gær. Á meðal þeirra er átta ára gamalll drengur. Yfir 130 særðust í árásinni, þar af 30 lífshættulega og götur í Boylston stræti voru alblóðugar eftir árásirnar. Frídagur var í Boston í gær og fór Boston maraþon fram þegar sprengjurnar sprungu. Þær voru tvær og sprungu með örskömmu millibili. Þriðja sprengingin varð svo í bókasafni í Boston, en ekki er ljóst hvort að sú sprengja er tengd hinum tveimur. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í ávarpi sem hann flutti í gærkvöldi að yfirvöld myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að finna hver stæði að baki ódæðinu. Enginn hefur lýst tilræðunum á hendur sér, en sprengjurnar eru rannsakaðar sem möguleg hryðjuverk.Hátt í 40 Íslendingar tóku þátt í maraþoninu Þrjátíu og fimm Íslendingar tóku þátt í maraþoninu í Boston og urðu varir við að sprengjurnar sprungu. Einn þeirra, Magnús Þór Jónsson, sagði í samtali við fréttastofu í gærkvöldi að allir Íslendingarnir væru heilir á húfi. Hann sagði að þau hefðu öll verið beðin um að halda kyrru fyrir á hótelinu sem þau gistu á. Mikil skelfing ríkti í allri borginni og hann hefði aldrei upplifað neitt þessu líkt. Síðar um kvöldið hittust allir Íslendingarnir til þess að fara yfir stöðuna.Áhrif á fjármálamarkaði Markaðir í Asíu tóku dýfu í nótt eftir að fréttist af sprengingunum. Hlutabréfavísitölur féllu um tvö prósent og hlutabréf í Suður Kóreu og Ástralíu féllu einnig. Verð á olíu og gulli lækkaði einnig mikið. Markaðir í Bandaríkjunum lækkuðu líka í gærkvöld, en markaðir þar í landi voru um það bil að loka þegar sprengingin varð. Myndband af fyrstu sprengingunni, tekið af vef Boston.com
Tengdar fréttir Sprenging í Boston Að minnsta kosti þrír eru látnir eftir að tvær mjög kraftmiklar sprengjur sprungu í Boston nú fyrir stundu. Fjölmargir eru slasaðir. Þetta hefur FOX sjónvarpsstöðin eftir lögreglunni í borginni. 15. apríl 2013 19:14 Barack Obama heitir fullum stuðningi við íbúa í Boston Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er í stöðugum samskiptum við yfirvöld í Massachusett vegna sprenginganna sem þar urðu í kvöld og hefur falið ríkisstjórn sinni að veita alla þá aðstoð sem nauðsynleg er til þess að rannsaka og bregðast við. Talið er að minnst tvær, jafnvel þrjár sprengjur hafi sprungið í Boston í kvöld. Þar fór fram maraþon og voru fjölmargir Íslendingar í borginni. 15. apríl 2013 21:46 Fólk hvatt til að halda sig heima - önnur sprenging á bókasafninu Þrjár sprengjur hafa sprungið í Boston í kvöld; tvær við marklínu maraþonsins og ein á JFK bókasafninu í borginni nokkrum sekúndum síðar. 15. apríl 2013 21:14 "Mikil ringulreið" "Það eru mjög margir hérna úti á götu og mikil ringulreið,“ segir Ragna Sif Þórarinsdóttir, sem stundar nám í Boston University. Þrjár sprengjur sprungu í borginni í kvöld, tvær við marklínu maraþonsins og ein á JFK bókasafninu sem er í nágrenninu. 15. apríl 2013 21:45 Um 100 manns fluttir á spítala Um 100 manns hafa verið fluttir á spítala í Boston vegna meiðsla eftir þrjár sprengjur sem hafa sprungið þar í borg í kvöld. Fólkið hlaut margvísleg meiðsl. Að minnsta kosti tveir eru látnir. 15. apríl 2013 21:28 Tvítugur Sádi Arabi grunaður um ódæðið Tvítugur karlmaður frá Sádi - Arabíu hefur verið handtekinn grunaður um að standa að baki sprengingunum í Boston. Þetta fullyrðir fréttavefur New York Post. Samkvæmt blaðinu eru hann í gæslu á ónefndum spítala í Boston. Fox News segir að maðurinn hafi brunnið illa. Maðurinn mun hafa veirð handtekinn skömmu eftir að fyrri sprengjan sprakk. 15. apríl 2013 22:06 "Þetta er hræðilegt" "Þetta er bara hræðilegt ástand hérna,“ segir Erla Gunnarsdóttir hlaupari sem tók þátt í Boston Maraþoninu í dag. 15. apríl 2013 19:53 Íslendingarnir heilir á húfi - "Þetta er skelfing" "Eins og staðan er núna þá held ég að það sé búið að ná í alla Íslendinga og þeir eru á heilir á húfi,“ segir Magnús Þór Jónsson, sem er einn af þrjátíu og fimm Íslendingum sem tóku þátt í maraþoninu í Boston í kvöld. 15. apríl 2013 22:08 "Við munum komast að því hverjir gerðu þetta og af hverju“ "Við munum komast að því hverjir gerðu þetta og við munu láta viðkomandi sæta ábyrgð,“ sagði Barack Obama þegar hann ávarpaði þjóð sína í Hvíta húsinu klukkan tíu mínútur yfir tíu í kvöld. Þá tók hann skýrt fram að rannsakað yrði hvers vegna viðkomandi gerðu það sem þeir gerðu. 15. apríl 2013 22:26 Leik Celtics og Pacers aflýst NBA deildin aflýsti núna í kvöld leik sem til stóð að færi fram á milli Boston Celtics og Indiana Pacers á morgun. Samkvæmt dagskrá átti leikurinn að fara fram í TD Garden, heimavelli Boston. Bæði liðin munu því leika 81 leik á leiktímabilinu í stað 82 eins og venja er. Ástæðan er sprengingarnar í Boston í dag. Í yfirlýsingunni frá NBA deildinni er þolendum sprenginganna vottuð samúð. Rajon Rondo, einn af byrjunarliðsmönnum í Boston sagði á Twitter núna í kvöld að hann myndi biðja fyrir þolendunum. Shaquille O' Neal, sem lék með Boston til skamms tíma, sagði einnig að hugur hans væri hjá þolendunum. 16. apríl 2013 00:50 Tvær sprengjur í viðbót gerðar óvirkar Lögreglumenn hafa fundið að minnsta kosti tvær sprengjur í viðbót á svæðinu, þar sem tvær öflugar sprengjur sprungu í Boston fyrr í kvöld. Þær hafa verið gerðar óvirkar, að því er fram kemur á vef AP fréttastofunnar. 15. apríl 2013 20:33 Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Sjá meira
Sprenging í Boston Að minnsta kosti þrír eru látnir eftir að tvær mjög kraftmiklar sprengjur sprungu í Boston nú fyrir stundu. Fjölmargir eru slasaðir. Þetta hefur FOX sjónvarpsstöðin eftir lögreglunni í borginni. 15. apríl 2013 19:14
Barack Obama heitir fullum stuðningi við íbúa í Boston Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er í stöðugum samskiptum við yfirvöld í Massachusett vegna sprenginganna sem þar urðu í kvöld og hefur falið ríkisstjórn sinni að veita alla þá aðstoð sem nauðsynleg er til þess að rannsaka og bregðast við. Talið er að minnst tvær, jafnvel þrjár sprengjur hafi sprungið í Boston í kvöld. Þar fór fram maraþon og voru fjölmargir Íslendingar í borginni. 15. apríl 2013 21:46
Fólk hvatt til að halda sig heima - önnur sprenging á bókasafninu Þrjár sprengjur hafa sprungið í Boston í kvöld; tvær við marklínu maraþonsins og ein á JFK bókasafninu í borginni nokkrum sekúndum síðar. 15. apríl 2013 21:14
"Mikil ringulreið" "Það eru mjög margir hérna úti á götu og mikil ringulreið,“ segir Ragna Sif Þórarinsdóttir, sem stundar nám í Boston University. Þrjár sprengjur sprungu í borginni í kvöld, tvær við marklínu maraþonsins og ein á JFK bókasafninu sem er í nágrenninu. 15. apríl 2013 21:45
Um 100 manns fluttir á spítala Um 100 manns hafa verið fluttir á spítala í Boston vegna meiðsla eftir þrjár sprengjur sem hafa sprungið þar í borg í kvöld. Fólkið hlaut margvísleg meiðsl. Að minnsta kosti tveir eru látnir. 15. apríl 2013 21:28
Tvítugur Sádi Arabi grunaður um ódæðið Tvítugur karlmaður frá Sádi - Arabíu hefur verið handtekinn grunaður um að standa að baki sprengingunum í Boston. Þetta fullyrðir fréttavefur New York Post. Samkvæmt blaðinu eru hann í gæslu á ónefndum spítala í Boston. Fox News segir að maðurinn hafi brunnið illa. Maðurinn mun hafa veirð handtekinn skömmu eftir að fyrri sprengjan sprakk. 15. apríl 2013 22:06
"Þetta er hræðilegt" "Þetta er bara hræðilegt ástand hérna,“ segir Erla Gunnarsdóttir hlaupari sem tók þátt í Boston Maraþoninu í dag. 15. apríl 2013 19:53
Íslendingarnir heilir á húfi - "Þetta er skelfing" "Eins og staðan er núna þá held ég að það sé búið að ná í alla Íslendinga og þeir eru á heilir á húfi,“ segir Magnús Þór Jónsson, sem er einn af þrjátíu og fimm Íslendingum sem tóku þátt í maraþoninu í Boston í kvöld. 15. apríl 2013 22:08
"Við munum komast að því hverjir gerðu þetta og af hverju“ "Við munum komast að því hverjir gerðu þetta og við munu láta viðkomandi sæta ábyrgð,“ sagði Barack Obama þegar hann ávarpaði þjóð sína í Hvíta húsinu klukkan tíu mínútur yfir tíu í kvöld. Þá tók hann skýrt fram að rannsakað yrði hvers vegna viðkomandi gerðu það sem þeir gerðu. 15. apríl 2013 22:26
Leik Celtics og Pacers aflýst NBA deildin aflýsti núna í kvöld leik sem til stóð að færi fram á milli Boston Celtics og Indiana Pacers á morgun. Samkvæmt dagskrá átti leikurinn að fara fram í TD Garden, heimavelli Boston. Bæði liðin munu því leika 81 leik á leiktímabilinu í stað 82 eins og venja er. Ástæðan er sprengingarnar í Boston í dag. Í yfirlýsingunni frá NBA deildinni er þolendum sprenginganna vottuð samúð. Rajon Rondo, einn af byrjunarliðsmönnum í Boston sagði á Twitter núna í kvöld að hann myndi biðja fyrir þolendunum. Shaquille O' Neal, sem lék með Boston til skamms tíma, sagði einnig að hugur hans væri hjá þolendunum. 16. apríl 2013 00:50
Tvær sprengjur í viðbót gerðar óvirkar Lögreglumenn hafa fundið að minnsta kosti tvær sprengjur í viðbót á svæðinu, þar sem tvær öflugar sprengjur sprungu í Boston fyrr í kvöld. Þær hafa verið gerðar óvirkar, að því er fram kemur á vef AP fréttastofunnar. 15. apríl 2013 20:33