Sunderland sló Chelsea út úr deildabikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2013 22:20 Ki sung-Yueng fagnar hér sigurmarki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Varamaðurinn Ki sung-Yueng var hetja Sunderland í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið á móti Chelsea í 2-1 sigri í framlengdum leik í átta liða úrslitum enska deildabikarsins. Sunderland og Manchester City komust áfram í undanúrslit keppninnar í kvöld. Ki sung-Yueng, sem er í láni frá Swansea City, kom inn á sem varamaður á 62. mínútu þegar staðan var 1-0 fyrir Chelsea og leikur Sunderland var allt annað en sannfærandi. Annar varamaður, Fabio Borini, skoraði jöfnunarmarkið tveimur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma og lagði upp sigurmarkið fyrir Ki sung-Yueng sem kom rétt fyrir lok framlengingarinnar. Chelsea komst í 1-0 eftir sjálfsmark Sunderland-mannsins Lee Cattermole. Markið kom á upphafsmínútu seinni hálfleiksins eftir fyrirgjöf Cesar Azpilicueta og pressu frá Frank Lampard. Það þurfti að beita marklínutækninni til þess að staðfesta það að boltinn fór inn fyrir marklínuna. Þannig var staðan þar til á 88. mínútu leiksins þegar Fabio Borini, lánsmaður frá Liverpool, jafnaði metin og tryggði Sunderland framlengingu. Jozy Altidore hafði þá skapað mikinn usla í teignum og Borini fylgdi vel á eftir. Sunderland var miklu betra liðið í framlengingunni og markið var búið að liggja lengi í loftinu þegar Suður-Kóreumaðurinn Sung-Yueng Ki fékk boltann frá Fabio Borini og skoraði af mikilli yfirvegun. Fyrr í kvöld varð Manchester City fyrsta liðið til að komast í undanúrslitin eftir 3-1 útisigur á b-deildarliði Leicester City. Hinir tveir leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram annað kvöld en þá mætast Stoke City - Manchester United annarsvegar og Tottenham - West Ham United hinsvegar.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti „Langir fætur hjálpa við að sparka í hausinn á þeim“ Sport Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Fleiri fréttir Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Sjá meira