Enski boltinn

Hart: Tvö gæðaaugnablik tryggðu okkur sigurinn

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Joe Hart rétt áður en hann fellir Demba Ba í dag.
Joe Hart rétt áður en hann fellir Demba Ba í dag.
Joe Hart hélt hreinu í sigri Manchester City gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. City hélt þar með lífi í möguleikum sínum á verja titilinn.

„Þetta var erfiður leikur en tvö gæðaaugnablik tryggðu okkur sigurinn. Við vitum að við getum unnið alla svo lengi sem við verjumst vel," sagði Hart.

Hann varði frábærlega víti frá Frank Lampard. Hart var reyndar heppinn að fjúka ekki útaf þegar hann felldi Demba Ba.

„Frank Lampard er frábær vítaskytta og ég lít upp til hans. Við höfum talað mikið um víti áður. Hann er sterkur andlega og þó að ég hafi varið í dag þá mun það ekki hafa mikil áhrif. Þetta var bara spurning um að fara í rétt horn og ná góðri hönd á boltann."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×