Zabaleta: Hópurinn betri en sá sem vann titilinn Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 27. október 2013 14:30 MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Argentínski bakvörðurinn Pablo Zabaleta hjá Manchester City segir leikmannahóp félagsins í ár vera betri en sá sem vann Englandsmeistaratitilinn 2012. Manchester City hefur unnið alla fjóra heimaleiki sína á tímabilinu og er sex stigum á eftir toppliði Arsenal áður en flautað verður til leiks City og Chelsea á Stamford Bridge klukkan 16 í dag í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Þrátt fyrir að hafa aðeins náð í fjögur stig í fjórum útileikjum á tímabilinu er Zabaleta bjartsýnn á góðan árangur undir stjórn Manuel Pellegrini í vetur. „Ég held að hópurinn sé betri en sá sem vann titilinn,“ sagði Zabaleta við breska blaðið the Sunday People. Nokkrir leikmenn hafa farið og aðrir stórir leikmenn komið í staðin. Carlos Tevez og Mario Balotelli léku stórt hlutverk í meistaraliðinu og líka Nigel de Jong og Adam Johnson. „En núna erum við með að minnsta kosti tvo leikmenn í hverri stöðu. Jafnvægið í liðinu er mikið. Stjórinn hefur marga valkosti og það er jákvætt. „Nýju leikmennirnir koma allir með eitthvað nýtt inn í liðið. Alvaro Negredo, Jesus Navas og Fernandinho hafa aðlagast mjög fljótt og látið mikið að sér kveða nú þegar. „Stevan Jovetic og Martin Demichelis hafa ekki leikið marga leiki en þeir munu fá sín tækifæri. Þessir nýju leikmenn hafa gert liðið enn sterkara,“ sagði Zabaleta sem hlakkar til að eiga við Chelsea í dag. „Það er aldrei auðvelt að fara á Stamford Bridge en við munum reyna að sækja til sigurs. Okkur gekk vel gegn Chelsea á síðasta tímabili en það telur ekkert núna því Jose Mourinho er kominn aftur og það breytir liðinu mikið þó þeir séu með nánast sömu leikmenn.“
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Í beinni: Bournemouth - Liverpool | Salah stimplar sig aftur inn í enska Enski boltinn Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Bournemouth - Liverpool | Salah stimplar sig aftur inn í enska Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Sjá meira