Enski boltinn

Messan: Missir Chelsea af Meistaradeildarsæti?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Bendiktsson og Hjörvar Hafliðason tóku Chelsea fyrir í Sunnudagsmessunni í gær. Chelsea tapaði 0-2 á móti Manchester City á sunnudaginn og hefur aðeins náð að vinna einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum.

„Ég hef áhyggjur af því að Chelsea missi Meistaradeildarsætið. Þetta eru þrjú lið sem eru að berjast um þetta: Chelsea, Tottenham og Arsenal," sagði Hjörvar Hafliðason sem var ekki hrifinn af spilamennsku Chelsea undanfarið.

„Stuðningsmenn vilja ekki hafa Benitez þarna og af hverju ættu leikmenn að vera eitthvað spenntir fyrir því að spila fyrir hann," sagði Hjörvar en Guðmundur og Bjarni Guðjónsson tjáðu sig líka um gengi og spilamennsku Chelsea-liðsins.

Það er hægt að sjá umræður strákanna með því að smella hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×